 |
 |
25.02.2010 |
| Kynorkusúpan í Sóknarfæri |
| Kynorkusúpan Sæagra var kynnt sérstaklega til sögunnar í blaðinu Sóknarfæri sem dreift var með Morgunblaðinu í dag. Almannatengslafyrirtækið Athygli gefur Sóknarfæri út og í þetta sinn er blaðið helgað sjávarútveginum. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
23.12.2009 |
| Skötuát við harmóníkuundirleik |
Einlæg Þorláksmessustemning ríkti á Sægreifanum í hádeginu og þétt setinn Svarfaðardalur á báðum hæðum. Fastagestir þustu að og vildu skötuna sína en útlenda túrista bar líka að garði í leit að humarsúpunni heimsfrægu. Öllum var þjónað hratt og vel en auðséð var á andliti þeirra útlendu að þeim þótti undarleg lykt í loftinu og mikið ganga á í húsinu.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
23.12.2009 |
| Beitukóngur og sviðakjammi á Þorláksmessu |
| Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og fyrrverandi alþingismaður, lagði beitukóng á borð með sér á Sægreifanum á Þorláksmessu, leit ekki við skötunni en pantaði sviðakjamma að vanda. Kjartan Sægreifi lét sér ekki bregða, enda hefur hann verið með kappanum til sjós og veit allt um að sjóarinn tekur kjöt jafnan fram yfir fisk. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
15.12.2009 |
| Kæstur Obama á Þorláksmessu |
Nú fer hver að verða síðastur að panta borð í skötuveislu Sægreifans á Þorláksmessu.Færri komust þar að en vildu í fyrra og á því verður ekki breyting í ár enda sama gamla verðið: 1.700 krónur. Hver býður betur í höfuðborginni í ár? Þeir sem komast ekki að á Þorláksmessu geta í sárabót komið til okkar dagana áður.. Þá ætlum við nefnilega að bjóða líka upp á skötu.
|
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
15.12.2009 |
| Opið alla daga um hátíðar! |
| Sægreifinn er veitingahús sem sjaldan sefur. Þar er opið alla daga um jól og áramót enda segja húsráðendur að ekki sé hægt að gera erlendum ferðamönnum í Reykjavík það að koma að lokuðum dyrum. Margir þeirra hafa heyrt eða séð um Sægreifann áður en þeir koma til landsins og heimsókn þangað er ofarlega á listanum. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
15.12.2009 |
| Engin jól án áls frá Sægreifanum |
| Kjartan Sægreifi vinnur stöðugt að því að fjölga hollvinum álsins, þess magnaða og merkilega fisks. Í Sægreifanum fæst reyktur áll frá Járngerðarstöðum í Grindavík og af Mýrum í Borgarfirði, unaðslegur matur sem á heima á veisluborði jólanna og reyndar hvenær sem menn vilja gera sér dagamun. |
 |
| Nánar » |
|
|
 |