|
|
|
|
 |
Fiskbúðin sem breyttist í veitingahús
Kjartan Halldórsson opnaði þarna fiskbúð við Reykjavíkurhöfn á árinu 2002 og ætlaði að láta þar við sitja. Útlendir ferðamenn sýndu fiskbúðinni hans strax mikinn áhuga og urðu þar fastagestir til að spá í sjávarfangið og taka bæði myndir af því og fisksalnum til minningar um Íslandsheimsóknina. Þeir vildu hins vegar fá að smakka líka á þessum hafsins gæðum.
Kjartan brást við óskum þeirra með því að bjóða upp á humarsúpu og fiskspjót af grilli. Þá var ekki aftur snúið og humarsúpa Sægreifans er fyrir löngu orðin heimsfræg!
Umsvif í veitingarekstrinum jukust eftir því sem útlendum og íslenskum gestum hefur bara fjölgað...

Kjartan Sægreifi Halldórsson átti sjötugsafmæli í byrjun október 2009 og hélt upp á það með stæl í hópi starfsmanna. Flottur hópur og kynjahlutfallið er körlum sýnilega býsna mikið í óhag en Kjartan kvartar alls ekki yfir því....
|
|